27.7.05

Enn eitt dæmi um illsku manna

Þetta eru myndir frá Harare, höfuðborg Zimbabwe, þar sem stórvöld ákváðu hreinlega að þurrka út heilu fátækrarhverfin í maí 2005. Það var ekki alveg þetta sem menn eru að tala um þegar SÞ setja fram markmið um að útrýma fátækt. Um 700,000 manns hafa misst heimili sín. SÞ birtu skýrslu um þetta nú nýlega þar sem stjórnvöld eru harkalega gangrýnd, en ólíklegt er að nokkuð breytist á næstunni, sérstaklega þar sem bæði Kínverjar og Rússar neita að viðhafast nokkuð innan öryggisráðsins.

Dánlódaði svo Google Earth forritið í dag. Það er hreint út sagt ótrúlegt að skoða þetta. Það er eiginlega einfaldast að lýsa þessu sem forriti sem líkir eftir gamaldags hnetti af jörðinni. Munurinn er sá að það er hægt að stækka upp kortið ótrúlega mikið á sumum stöðum. Vel þess virði að kíkja á.

1 comment:

Anonymous said...

Hæhæ!!

Takk fyrir að benda mér á bloggið þitt. Ég er alveg að fara að byrja með eitthvað svoleiðis - alveg satt! :S

En svona í millitíðinni geturðu kíkt á heimasíðuna okkar á barnaland, emailaðu mig og ég skal senda þér url og aðgangsorð. Póstfangið er það sama og MSNið mitt, vigfus.eiriksson@gmail.com

Skelfilegt að hugsa til meðferðarinnar á fólki þarna úti og maður verður náttúrulega bara pirraður á lífsgæðaskammhlaupinu sem tröllríður öllu (bílisminn hefur t.d. gersigrað á Íslandi), en gaman að sjá myndirnar af spúsu þinni. Hún er nú bara talsvert verkleg að sjá til hlaupsins. Biðjum kærlega að heilsa henni og þér,

Vigfús B. Döniger